Ætlaði úr landi með 355 kg af kopar

180 kílóum af muldu síuefni úr hvarfakútum var komið fyrir …
180 kílóum af muldu síuefni úr hvarfakútum var komið fyrir í jeppadekkjum. Ljósmynd/Tollgæslan

Tollverðir lögðu hald á mikið magn þýfis sem karlmaður ætlaði með úr landi í síðustu viku. Meðal þess sem tollverðir fundu voru 355 kíló af kopar sem falinn var í bifreið mannsins. Einnig fundust 180 kíló af muldu síuefni úr hvarfakútum sem falin voru í plastpokum í fjórum jeppadekkjum.

Þýfið fannst í bifreið manns sem var einn á ferð og hugðist yfirgefa landið með ferjunni Norrænu.

Þá fannst glussaklippukjaftur sem talinn er hafa verið notaður til að klippa hvarfakúta undan bílum. Mikið magn snyrtivara var einnig falið víðs vegar í bíl mannsins svo og sterkur segull, sem ætlað er að hafi verið notaður til að trufla öryggishlið í verslunum.

Að auki fundu tollverðir í bílnum 20 lítra brúsa með díselolíu og öfluga flugeldatertu, en hvoru tveggja er óheimilt að flytja með Norrænu.

Maðurinn sem um ræðir tengist umfangsmiklu hvarfakútamáli, sem upp kom á Seyðisfirði í apríl, þegar reynt var að smygla rúmlega 400 keramikeiningum úr nýjum og notuðum hvarfakútum úr landi.

Tollverðir afhentu lögreglu þýfið sem þeir fundu í síðustu viku og rannsakar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Ragnar Kristján Gestsson: wtf
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert