Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í dag í máli Flugastraums ehf. gegn Landsbankanum að fjármögnunarleigusamningar Landsbankans (áður SP Fjármögnunar) væru í raun lánasamningar og því væri gengistrygging þeirra ólögleg.
Krefjast leiðréttingar
Í niðurstöðu dómsins segir m.a. að SP fjármögnun hafi veitt Flugastraumi ehf. lán til kaupa á dráttarvél sem SP fjármögnun útbúið í formi leigusamnings til tryggingar réttindum sínum. Dómsmál þetta er eitt af fjölmörgum málum er Samtök iðnaðarins hafa staðið að með ýmsum fyrirtækjum.
Í fréttatilkynningu frá Samtökum Iðnaðarins um málið er þess krafist „að fyrirtæki á fjármálamarkaði virði niðurstöður dómstóla og leiðrétti þegar í stað þúsundir ólöglegra fjármögnunarleigusamninga.“
Þá segir að fjármögnunarleigur hafi gert ólöglega lánasamninga við 2.500 fyrirtæki og að heildarupphæð hlaupi á milljörðum króna vegna þeirra 10-15 þúsund fjármögnunarleigusamninga sem gerðir voru.
Óvissa hamlandi fyrir endurreisn atvinnulífs
Dómurinn er samhljóða dómi Hæstaréttar frá 20. október 2011 þegar samningar Íslandsbanka voru dæmdir ólöglegir. Vafaatriði varðandi vaxtaútreikning ólöglegra lána hafa tafið fyrir lokauppgjöri við lántakendur.
„SI telja þessa bið allsendis óviðunandi. Skuldastaða fyrirtækja er óljós. Fyrirtækjum er gert ómögulegt að kaupa eða selja framleiðslutæki og tól. Þessi langvarandi óvissa og kyrrstaða er íslensku atvinnulífi fjötur um fót. Fjármálafyrirtækjum ber tafarlaust að endurreikna hin ólöglegu lán miðað við Seðlabankavexti með fyrirvara um betri rétt lántakenda og endurtaka þá útreikninginn ef dómar falla á þá lund. Óvissa vegna þessara mála sl. þrjú ár er hamlandi og tefur fyrir nauðsynlegri endurreisn íslensks atvinnulífs,“ segir í fréttatilkynningu Samtaka iðnaðarins.