Grímuklæddur dekkjaþjófur á ferð

Mynd úr safni
Mynd úr safni AFP

Grímuklæddur karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Smiðjuhverfinu í Kópavogi á öðrum tímanum í nótt af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn, sem huldi andlit sitt með grímu, hafði skrúfað varadekk undan pallbíl og var að koma dekkinu fyrir í bifreið sem hann hafði komið á, þegar lögreglu bar að. Maðurinn, sem nú gistir fangageymslu, var með hafnaboltakylfu í fórum sínum þegar hann var handtekinn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert