Vilja ekki að hætt verði við stækkun hvalaskoðunarsvæðis

mbl.is/Eggert

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hvetja sjávarútvegsráðherra eindregið að afturkalla ekki ákvörðun forvera síns um stækkun hvalaskoðunarsvæðis í Faxaflóa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum, sem segja að ráðherra hafi rætt þetta mál á Stöð 2 í fyrradag.

Þar sagði Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra að það hefði  verið pólitísk ákvörðun hjá Steingrími J. Sigfússyni að stækka bannsvæði hvalveiða á Faxaflóa og að hún hefði ekki verið byggð á vísindalegum rökum. Sigurður sagðist ætla að endurskoða ákvörðina og íhuga að draga hana til baka.

SAF segja að hvalaskoðun sé ein af meginstoðum ferðaþjónustunnar á Íslandi og sú grein sem vaxið hafi hvað hraðast á síðustu árum.

„Um er að ræða stærsta afþreyingariðnað ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu sem hefur margvísleg margföldunaráhrif á aðrar greinar ferðaþjónustu. Veltan í hvalaskoðun er margfalt meiri en í hrefnuveiðum og gegnir þessi grein mikilvægu hlutverki varðandi ímynd Íslands og við landkynningu,“ segir í tilkynningunni.

„Þegar farið að bitna á hvalaskoðuninni“

SAF benda á, að Samtök hrefnuveiðimanna hafi lýst því yfir að 80% veiðanna hafi undanfarin ár verið innan núverandi hvalaskoðunarsvæðis í Faxaflóa. Það eitt sé sönnun þess að hrefnuveiðimenn hafi verið að veiða sömu dýrin og hvalaskoðunin hafi byggt afkomu sína á.

„Þetta er þegar farið að bitna á hvalaskoðuninni og mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir greinina ef núverandi hvalaskoðunarvæði yrði minnkað aftur til fyrra horfs en sífellt færri hrefnur sjást í ferðunum,“ segja Samtök ferðaþjónustunnar.

Samtök ferðaþjónustunnar segja enn fremur, að þau hafi í mörg ár óskað eindregið eftir því að hvalaskoðunarsvæðið á Faxaflóa verði stækkað. 

„Því skora samtökin á sjávarútvegsráðherra að afturkalla ekki umrædda reglugerð án viðtæks samráðs við alla hagsmunaaðila og þá aðeins með þeim möguleika að stækka svæðið enn frekar til samræmis við áður framkomnar óskir Hvalaskoðunarsamtaka Íslands og SAF.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert