Varað við hvassviðri í kvöld

Varað er við hvassviðri við fjöll í kvöld.
Varað er við hvassviðri við fjöll í kvöld. Rax / Ragnar Axelsson

Margir halda heim á leið síðar í dag eftir ferðalög helgarinnar. Í tilkynningu frá Vegagerðinni er varað við hvössum vindi við fjöll í kvöld. „Í kvöld hvessir af suðaustri um leið og skil fremur djúprar lægðar nálgast landið,“ segir í tilkynningunni. 

Reikna má með vindhviðum 30-35 m/s frá því um kl. 20-21 og fram á nótt undir Hafnarfjalli, á utanverðu Kjalarnesi og eins um tíma nærri miðnætti á norðanverðu Snæfellsnesi.

Ökumenn með fellihýsi og aðra vagna ættu því að fara varlega þegar ekið verður heim á leið í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert