„Ekki seinna vænna eftir 30 ár“

Skjáskot af vef Alþingis.
Skjáskot af vef Alþingis. mbl.is

„Ég hef bara gaman af því að spreyta mig á þessu. Það voru nú einhverjir að segja að það væri ekki seinna vænna eftir 30 ár á þingi að setjast í forsetastól. Þannig að ég hef bara gaman af því eins og öllu öðru. Þetta er enn eitt hlutverkið sem ég hef þá prófað hér á langri þingsetu.“

Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, í samtali við mbl.is en hann settist í fyrsta sinn í stól forseta Alþingis fyrir síðustu helgi og síðan aftur í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem Steingrímur á sæti í forsætisnefnd Alþingis, en hann er 4. varaforseti þingsins. Steingrímur tók fyrst sæti á Alþingi árið 1983.

„Það eru ekki margar nefndir eftir sem ég hef ekki setið í. Þannig að þetta er ágætt. Ég hef bara gaman af þessu, að leggja mitt af mörkum þarna,“ segir Steingrímur aðspurður hvort þetta sé kannski það eina sem hafi verið eftir. Spurður hvernig það hafi komið til að hann tók sæti í forsætisnefnd segist hann einfaldlega hafa lagt málið í hendurnar á forystu VG og þetta verið niðurstaðan.

„Ég setti það bara í hendurnar á formanni flokksins og þingflokksformanni að þær mættu ráðstafa mér eins þær vildu. Ég gerði nú ekki miklar kröfur og var einfaldlega reiðubúinn að fara í þau verk eins og skipaðist í okkar þingflokki. Við erum náttúrlega sjö manna þingflokkur og þurfum að manna allar nefndir og einn eða tveir í tveimur. Þannig að við skiptum þessu með okkur,“ segir hann.

Landsmenn eru líklega vanari því að sjá Steingrím í talsvert öðruvísi hlutverkum en hann hefur á löngum stjórnmálaferli sínum sem kunnugt er gegnt nokkrum ráðherraembættum auk þess að hafa í 14  ár verið formaður VG og þar á undan varaformaður Alþýðubandalagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert