Reykvíkingur ársins, Ólafur Ólafsson formaður íþróttafélagsins Aspar, landaði fyrsta laxi sumarsins úr Elliðaánum rúmlega sjö í morgun. Ólafur renndi fyrir laxi í Sjávarfossi, með aðstoð Ásgeirs Heiðars leiðsögumanns, klukkan 7:03 og einungis tveimur mínútum síðar var vænn lax á.
Laxinn var veiddur á maðk en Ólafur lenti í nokkrum barningi með laxinn því fiskurinn tók á rás niður ána og kom á land í hylnum fyrir neðan Sjávarfoss.
Jón Gnarr, borgarstjóri, tilkynnti um valið á Ólafi sem Reykvíking ársins við opnun Elliðaánna í morgun. Hann sagði að Ólafur hlyti nafnbótina fyrir óeigingjarnt starf í þágu fatlaðra og þroskahamlaða um langt árabil.
Íþróttafélagið Ösp var stofnað 18. maí, 1980 af foreldra- og kennarafélagi Öskjuhlíðarskóla, með stuðningi frá Íþróttasambandi Fatlaðra.
Markmið íþróttafélagsins Aspar er að standa fyrir íþróttaæfingum hjá félögunum, með sem fjölbreyttustum hætti, þeim til heilsubótar og ánægju og þátttöku í íþróttamótum, þar sem hæfni hvers og eins nýtur sín sem best.