Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðaði í dag svifvængjaflugmann sem lenti á eyju í miðri Þjórsá. Þyrlan lenti á eyjunni og var konan tekin um borð. Læknir um borð gekk síðan úr skugga um að í lagi væri með hana. Því næst var hún sett út við Búrfell þar sem hún hafði lagt upp í flugið.
Að sögn Landhelgisgæslunnar var þyrlan skammt frá í venjubundnu æfingaflugi þegar henni barst beint beiðni um aðstoð vegna svifvængjaflugmannsins. „Af því þeir voru í nágrenninu þá fóru þeir á staðinn, sóttu fyrst tvo menn sem voru kunnugir og í framhaldinu var farið að eyjunni, konan sótt og hún síðan sett í land.“
Gæslan hefur ekki fengið lokaskýrslu um málið en útkallið tók skamman tíma, alls liðu 16 mínútur frá því þyrlunni barst beiðnin og þar til lent var með konuna.