Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir nauðsynlegt að líta ekki svo á að hér verði dregið úr kröfum og úr námi ef kæmi til að stytta skólann. Með góðri samstöðu sé möguleiki að stytta nám á kjörtímabilinu.
Linda Rós Michaelsdóttir, rektor MR, telur að betri möguleiki sé að stytta grunnskólann. Þar séu efstu bekkir ekki nægjanlega vel nýttir.