Bátur strandaði með 9 manns

mbl.is/Heiddi

Björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi hafa verið kallaðar út vegna báts sem er strandaður við Skoreyjar. Níu manns eru um borð, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Þrír björgunarbátar eru nú á leið á staðinn en mikill straumur er á svæðinu og erfiðar aðstæður af þeim sökum. Munu björgunarmenn freista þess að koma fólkinu frá borði og í björgunarbátana eða í land.

Frétt mbl.is: Skipverjum bjargað frá borði

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert