Fjórar einkaþotur og tvær minni einkavélar eru nú staðsettar á Reykjavíkurflugvelli. Fyrir nokkrum árum voru einkaþotur reglulegir gestir á vellinum en heimsóknunum fækkaði heldur í kjölfar efnahagshrunsins og vekja vélarnar vekja því nokkra athygli.
Að sögn starfsmanns Flugþjónustunnar á vellinum virðist vélum af þessu tagi nú fara fjölgandi á ný.
Vélarnar eru skráðar í Bandaríkjunum og í Danmörku.