Náttúruverndarsamtök Suðurlands mótmæla frestun umhverfis-- og auðlindaráðherra á ákvörðun um stækkun friðlands í Þjórsárverum. Samtökin segja stækkun friðlandsins í Þjórsárverum vera rökrétt framhald rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða þar sem athafnasvæði mögulegrar Norðlingaölduveitu var sett í verndarflokk.
Í ályktun samtakanna segir að rammaáætlun byggi á löngu og ítarlegu ferli samráðs þar sem fjöldi hagsmunaaðila, þ. á m. Landsvirkjun, hefur haft tækifæri til álitsgjafar og umsagna á öllum stigum.
„Stækkun friðlands í Þjórsárverum er vernd gagnvart orkuvinnslu sem á sér lagastoð í sjálfri rammaáætlun,“ segir í ályktuninni.
„Fullyrðingar Landvirkjunar um ólögmæti stækkunar friðlandsins vegna skorts á samráði fá því ekki staðist. Fullyrðingar umhverfis-- og auðlindaráðherra um alvarlegar athugasemdir sveitarfélaga við stækkun friðlandsins hafa ennfremur verið hraktar á opinberum vettvangi. Náttúruverndarsamtök Suðurlands gagnrýna einnig hvernig staðið var að afboðun samkomu vegna áformaðrar undirskriftar stækkunar friðlands í Þjórsárverum.“
Samtökin segjast afþakka frekari afskipti Landvirkjunar af friðlýsingum svæða í verndarflokki rammaáætlunar. Samtökin skora á umhverfis-- og auðlindaráðherra að standa vörð um rammaáætlun og jarða hið fyrsta þá stríðsöxi sem Landsvirkjun reiddi á loft með síðbúnum afskiptum af máli sem þegar var víðtæk sátt um í þjóðfélaginu.