Eins og fram hefur komið á mbl.is datt söngvarinn Nick Cave af sviðinu á tónlistarhátíðinni All Tomorrow's Parties (ATP) í gær.
Stjörnuhrapið varð í öðru laginu hjá Nick Cave and the Bad Seeds, en Cave var snöggur upp á sviðið aftur, þar sem hann kláraði tónleikana.
Tómas Young, tónleikahaldari ATP, segir söngvarann hafa kveinkað sér lítillega eftir tónleikana og að hann hafi farið á slysadeildina í Fossvoginum. „Það sást ekki á honum á tónleikunum að hann hefði dottið. Ef þú sást hann ekki detta þá hefði þér ekki dottið í hug að það hefði gerst,“ segir Tómas. „Eftir tónleika fór hann á slysó. Hann marðist illa en á að jafna sig á nokkrum vikum. Hann er örugglega kominn á Glastonbury-hátíðina, þar sem hann á að spila klukkan sjö í kvöld,“ segir Tómas. „Hann er algjör töffari.“
Tómas segir hátíðina hafa heppnast vel og að allir séu gríðarlega ánægðir með hana. „Það eru allir í skýjunum með þetta. Hátíðin verður örugglega haldin aftur hérna. Þessi hátíð er ólík hátíðum eins og Hróarskeldu sem er haldin einu sinni á ári, þessi er haldin oft, hún verður til dæmis haldin tvisvar núna í nóvember.“
Frétt mbl.is: Nick Cave datt af sviðinu