Ökumaður fólksbíls sem lenti í árekstri við jeppa á gatnamótum Háaleitisbrautar og Bústaðavegar í morgun er lærbrotinn. Hann er grunaður um fíkniefnaakstur. Jeppinn valt við áreksturinn og hlaut ökumaður hans rifbeinsbrot.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar voru ökumenn báðir einir í bílum sínum.
Jeppinn var á leið norður Háaleitisbraut en fólksbíllinn á leið austur Bústaðaveg.
Frétt mbl.is: Valt í árekstri á Bústaðavegi