Ástþór Magnússon, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, hefur komið á fót vefsvæði þar sem skora má á Alþingi Íslendinga að veita uppljóstraranum Edward Snowden íslenskan ríkisborgararétt og gefa út ferðaskilríki svo hann geti ferðast til Íslands án tafar.
Um leið og staðfest hefur verið að áskorun og undirskrift stafi frá viðkomandi einstaklingi, er hún áframsend til Alþingis á netföng ráðherra.
Hægt er að senda inn staðlaðan texta eða eigin í áskoruninni til Alþingis.