Landeyjahöfn á að loka í fyrstu haustbrælum og hún á að vera lokuð að vetrarlagi, eins og höfnin er nú. Þetta er mat Halldórs B. Nellett, skipherra, sem hefur yfir 40 ára reynslu af sjómennsku og þekkir vel sjólagið milli lands og Vestmannaeyja í brælum.
Halldór segir að það sé afleitt að hafa hafnarmynni Landeyjahafnar opið fyrir öllum haf- og ölduáttum. Auk þess séu brimbrjótarnir sem verja höfnina allt of stuttir. Hann telur að breyta þurfi hafnargörðum Landeyjahafnar til þess að bæta öryggi hennar. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Halldór að höfnin sé beinlínis hættuleg í vondu veðri.
Halldór bendir á að aust- og suðaustlægar áttir séu mjög algengar og oft þær verstu á þessu svæði. Þess vegna sé nauðsynlegt að eystri varnargarðurinn nái lengra út en hann gerir nú. Væri það gert yrði innsiglingin öruggari og myndi fækka þeim dögum sem ófært væri í Landeyjahöfn.