Alþingi kaus í nótt sjö menn í bankaráð Seðlabankans. Nýtt bankaráð skipa Ólöf Nordal, Ingibjörg Ingvadóttir, Ragnar Árnason, Jón Helgi Egilsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, Björn Valur Gíslason og Auður Hermannsdóttir.
Alþingi samþykkti einnig skömmu eftir miðnætti frumvarp sjávarútvegsráðherra um lækkun veiðigjalda með 37 atkvæðum gegn 25, einn greiddi ekki atkvæði.