Ólafur Darri Ólafsson hlaut í dag verðlaun á Karlovy Vary International Film Festival sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í kvikmyndinni XL. XL var valin til þátttöku í aðalkeppni Karlovy Vary-kvikmyndahátíðarinnar ásamt 13 öðrum kvikmyndum.
Mikil þýðing fyrir litla mynd
Ólafur Darri var að vonum sigurreifur þegar mbl.is náði tali af honum en þá var hann nýstiginn af rauða dreglinum. Aðspurður hvaða þýðingu þetta hafi fyrir hann segir Ólafur: „Kannski fær maður meiri athygli í Evrópu en svo hefur þetta fyrst og fremst mikla þýðingu fyrir litlu myndina okkar sem hefur ekki mikla peninga til auglýsinga,“ segir Ólafur Darri.
Hann segir að heiðurinn sé mikill. „Bara sú viðurkenning að hafa fengið tilnefningu er stórkostleg, en að hafa sigrað er eins og rjómi með sykri og smjöri,“ segir Ólaur Darri.
Hátíðin er ein sú elsta í heiminum og er svokölluð A-hátíð. Ekki fá nema 14 kvikmyndahátíðir í keppnisflokki að bera þann stimpil. Þykir þetta mikill heiður fyrir Ólaf Darra og aðra aðstandendur kvikmyndarinnar.
„Þetta eru langstærstu verðlaun sem ég hef fengið, þetta er ótrúlegur heiður og ég átti aldrei von á því að geta fengið svona stór verðlaun. En ég tek fram að ég deili þeim með fólkinu sem ég vann með. Sérstaklega Matta (Marteinn Þórsson) leikstjóra, án hans væri þetta ekki að gerast. Ég er ofboðslega þakklátur honum,“ segir Ólafur.
Hugrökk hátíð
Tilnefndar eru myndir hvaðanæva úr veröldinni. „Þessi hátíð er hugrökk. XL gerir miklar kröfur til áhorfandans og það kom okkur öllum ofboðslega skemmtilega á óvart að vera tekin inn í keppnina,“ segir Ólafur Darri. Hann segir að á frumsýningu hafi komið 1.200 manns. „Ég held í hreinskilni að það hafi fleiri séð hana í bíó í Tékklandi en á Íslandi,“ segir Ólafur Darri og hlær innilega.
Kvikmyndin Mýrin í leikstjórn Baltasars Kormáks hlaut hin eftirsóttu aðalverðlaun hátíðarinnar, Kristalshnöttinn, árið 2007. Á Karlovy Vary-kvikmyndahátíðnni eru verðlaun veitt fyrir bestu mynd, bestu leikstjórn, besta leikara, bestu leikkonu og sérstök verðlaun dómnefndar ásamt heiðursverðlaunum. Formaður dómnefndar í ár var hin margverðlaunaða og óskarstilnefnda Agnieszka Holland og heiðursverðlaunin hlaut óskarsverðlaunahafinn Oliver Stone.
Heldur áfram að elska fjölskylduna
XL fjallar um þingmanninn Leif Sigurðarson sem er neyddur í áfengismeðferð af vini sínum og félaga, forsætisráðherra Íslands. Áður en farið er í meðferð ákveður Leifur að halda eitt heljarinnar partí sem fer gjörsamlega úr böndunum.
Ólafur fékk að vita að hann myndi fá verðlaunin í gær. „Við hjónin tókum miðnæturvél til Parísar og erum lítið búin að sofa. Nú ætla ég að taka í spaðann á hinum vinningshöfunum og njóta þess að vera í þessari fallegu borg. Svo kemur maður heim og heldur áfram að elska fjölskylduna og njóta lífsins,“ segir Ólafur Darri.
Leikstjóri myndarinnar er Marteinn Þórsson en með aðalhlutverk fara Ólafur Darri Ólafsson og María Birta. Handrit myndarinnar er eftir Guðmund Óskarsson og Martein Þórsson. Kvikmyndataka var í höndum Bergsteins Björgúlfssonar, tónlist er eftir Önnu Þorvaldsdóttur og myndin var klippt af Stefaníu Thors, Marteini Þórssyni, Sigurði Eyþórssyni og Valdísi Óskarsdóttur. Myndina framleiða Tenderlee Motion Pictures Company og Stór og smá.