Illugi undirritar samning við Kína

Illugi Gunnarsson.
Illugi Gunnarsson. mbl.is

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, mun í dag undirrita samning milli Íslands og Kína um samstarf þjóðanna á sviðum vísinda og tækni.

Tilgangur samningsins er að efla enn frekar samstarf landanna á þessum sviðum með heimsóknum og vistaskiptum vísindamanna og framhaldsnema, sameiginlegum rannsóknaverkefnum og samskiptum af öðru tagi eins og stofnun sameiginlegra rannsókna- og þróunarmiðstöðva, segir í fréttatilkynningu.

Í þessum tilgangi verður sett á fót sameiginleg nefnd landanna sem verður samningsaðilum til ráðgjafar um framkvæmd samningsins.

Fyrir hönd Kína mun Cao Jianlin, aðstoðarráðherra Kína á sviði vísinda og tækni, undirrita samninginn en með honum í för eru háttsettir embættismenn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert