Skipulagsstofnun hefur hafnað því að leið B um Teigsskóg í Þorskafirði fari í mat á umhverfisáhrifum.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, að þessi afstaða Skipulagsstofnunar hafi komið Vegagerðinni nokkuð á óvart, þótt þessi möguleiki hafi vissulega verið inni í myndinni.
Vegagerðin hyggst kanna hvort til greina komi að endurskoða ákvörðunina. Einnig er hægt að kæra hana. 4