Fundi geislafræðinga þar sem farið var yfir efnisatriði nýja kjarasamningsins er nú lokið en Katrín Sigurðardóttir, formaður félags geislafræðinga, segir að enn hafi enginn dregið uppsögn sína til baka.
„Nú er hver og einn bara að gera upp hug sinn. Staðan er ekkert ljósari eftir fundinn. Við kynntum hvað felst í því sem um var samið og hver og einn verður nú að ákveða fyrir sig.“
Hún segist ekki vita til þess að einhver hafi dregið uppsögn sína til baka.