Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra kom til Winnipeg í Kanada í nótt og heiðraði minningu Vestur-Íslendinga frá Manitoba, sem voru í hernum eða friðargæslusveitum, nú eftir hádegið að staðartíma.
Forsætisráðherra lagði blómsveig að minnisvarða um fallna hermenn og friðargæsluliða frá Manitoba, en á meðal hinna látnu frá 1914 til nútímans eru margir af íslenskum ættum.
Fréttamenn frá fjölmiðlum í Winnipeg töluðu við forsætisráðherra í morgun og hann hitti Peter Bjornson, viðskiptaráðherra Manitoba, í hádeginu.
Sigmundur Davíð verður heiðursgestur á Íslendingahátíðinni í Mountain í Norður-Dakota í Bandaríkjunum á morgun og heldur síðan aftur til Manitoba til að taka þátt í Íslendingadagshátíðinni á Gimli um helgina.
Hátíðin í Mountain fer nú fram í 114. sinn en Íslendingadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur 1890 og skemmtunin þar er nú haldin í 124. sinn. 135 ár eru frá því Íslendingar settust fyrst að í Norður-Dakota, en fyrsti hópur Íslendinga kom til Winnipeg og síðar þar sem nú er Gimli í október 1875.
Á vef Winnipeg Free Press má sjá viðtal við Sigmund Davíð er hann heimsótti Mannréttindasafnið í Kanada.