Spáð er vindhviðum allt að 28 m/s á stöku stað við fjöll sunnan til á landinu fram á nótt. Veðurstofan varar einnig við sandfoki sunnan jökla.
Ágætisverður var í Herjólfsdal í kvöld, 5-6 m/sek, en mun hvassara var á Stórhöfða.
Mjög hvasst var á Kjalarnesi í dag og eins undir Hafnarfjalli. Vegagerðin varaði í dag einnig við hvassviðri sumstaðar á sunnanverðu Snæfellsnesi.