Farþegi réðist á leigubílstjóra í Hafnarfirði í nótt. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sat farþeginn, sem var karlmaður, fyrir aftan bílstjórann, sem var kona, og tók hann hana m.a. hálstaki.
Konan náði að losa sig og kalla eftir aðstoð. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að farþeginn hafi verið mjög ölvaður og ekki viðræðu hæfur. Árásin var tilkynnt kl. eitt í nótt.
Hann var færður í fangakelfa þar sem hann er vistaður í tengslum við rannsókn málsins.