45 þúsund undirskriftir á viku

Reykjavíkurflugvöllur
Reykjavíkurflugvöllur Eggert Jóhannesson

Félagið Hjartað í Vatnsmýri hefur nú safnað 45.000 undirskriftum á vefnum lending.is til stuðnings óskertri flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar. Engin undirskriftasöfnun hefur náð jafn miklu flugi á svo skömmum tíma, segir í tilkynningu frá félaginu.

Nákvæmlega vika er liðin frá því að söfnunin hófst og verður henni haldið áfram næstu fjórar vikur bæði á vefnum og með undirskriftalistum.

„Stjórn félagsins vill árétta að krafa þeirra 45.000 sem skrifað hafa undir er afar skýr, þ.e.a.s. að „flugstarfsemi verði verði óskert í Vatnsmýri til framtíðar“. Áratugir óvissu um framtíð vallarins hafa valdið starfsemi á flugvellinum miklum vanda og staðið í vegi fyrir eðlilegum fjárfestingum og uppbyggingu atvinnustarfsemi. Þeirri óvissu má nú eyða með því að festa staðsetningu vallarins í sessi, landsmönnum til farsældar.  Frestun á þeirri ákvörðun verður öllum til tjóns,“ segir í tilkynningu.

Á það má benda að á tveimur sólarhringum söfnuðust um 32 þúsund undirskriftir þar sem skorað var á ritstjórn DV að breyta áherslum sínum í janúar 2006. Snerist söfnunin um umfjöllun DV um mann á Ísafirði sem framdi sjálfsvíg í tengslum við umfjöllun blaðsins um kynferðislegt ofbeldi sem hann beitti unga pilta.

Þau samtök sem að þessum aðgerðum stóðu eru Deiglan.com, Samband ungra sjálfstæðismanna, Ungir jafnaðarmenn, Stúdentaráð HÍ, , Múrinn.is , Samband ungra framsóknarmanna, Tíkin.is, Ung frjálslynd, Heimdallur, Ung vinstrigræn, Vaka, Röskva og H-listinn.

Sjá nánar hér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert