48.000 undirskriftir safnast

Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur. mbl.is/ÞÖK

Samtals hafa rúmlega 48 þúsund undirskriftir safnast til stuðnings þess að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni en söfnunin hófst á vefsíðunni Lending.is fyrir rúmri viku. Þar segir meðal annars um hana:

„Flugvöllurinn í Vatnsmýri er hjartað sem slær allan sólahringinn árið um kring. Þangað koma og fara slasaðir á bráðamóttöku, sjúkir á sjúkrahús, starfsmenn á fundi, vörur til fyrirtækja, embættismenn í stjórnsýslu, ferðamenn í ferðaþjónustu, nemendur til náms, auk þess sem völlurinn er hjartað í flugsögu Íslendinga aftur til ársins 1919.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert