Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í þættinum Vikulokin á Rás 1 í morgun að ríkisstjórnin hygðist ekki framlengja álagningu auðlegðarskatts. Skattinn sagði hann hugsanlega ganga gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar.
Næsta gjaldár verður því það síðasta sem skatturinn verður lagður á.