Ketill Sigurjónsson, sérfræðingur í orkumálum, segir að áliðnaðurinn sé í miklum vandræðum og það sé í reynd ólíklegt að nokkurt álfyrirtæki leggi í stórar fjárfestingar í nýju álveri á Íslandi á næstum árum. Þetta kemur fram í pistli sem Ketill skrifar sem ber yfirskriftina Hvaða álver á Íslandi lokar fyrst?
„Í kosningabaráttunni fyrir Alþingiskosningarnar nú í vor virtist sem sumir þingframbjóðendur teldu það nánast formsatriði að koma framkvæmdum á fullt við byggingu nýs álvers í Helguvík. Þetta viðhorf var sérstaklega áberandi hjá frambjóðendum í Suðurkjördæmi, en innan kjördæmisins eru bæði Helguvík og margir virkjunarkostir.
Umrætt viðhorf stjórnmálamannanna bar ekki vott um mikið raunsæi eða skynsemi. Því hinn kaldi raunveruleiki er sá að áliðnaðurinn er í miklum vandræðum. Þess vegna er í reynd ólíklegt að nokkurt álfyrirtæki leggi í stórar fjárfestingar í nýju álveri hér á Íslandi á næstu árum,“ skrifar Ketill, en hann fer yfir stöðuna í áliðnaði í heiminum.
Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins og Stöðvar 2 í kvöld kom fram að stjórnendur Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, séu óþreyjufullir að koma framkvæmdum við álver í Helguvík aftur af stað, en þetta er haft eftir Mike Bless, forstjóra fyrirtækisins. Hann bætti því við að ríkisstjórnin sýni álverinu mikinn stuðning.
Ketill bendir á, að áliðnaðurinn á Íslandi noti rúmlega 70% af allri raforku sem hér sé framleidd. „Tekjur íslensku raforkufyrirtækjanna af þeirri raforkusölu ráðast verulega af álverði - vegna þess að í raforkusölusamningunum við álfyrirtækin hér hefur í gegnum tíðina tíðkast að verðið á raforkunni sé tengt álverði á heimsmarkaði,“ skrifar hann.
„Slík tenging er álfyrirtækjunum hagstæð - hún dregur umtalsvert úr áhættu þeirra. Um leið leggur slík tenging aukna áhættu á íslensku orkufyrirtækin. Lágt álverð kemur ekki aðeins niður á afkomu stóru íslensku raforkufyrirtækjanna heldur dregur það líka úr gjaldeyristekjum íslenska hagkerfisins og heldur þannig aftur af styrkingu íslensku krónunnar. Ástandið á álmörkuðum er því áhyggjuefni fyrir okkur Íslendinga,“ skrifar hann ennfremur.
Ketill segist ætla að fjalla nánar um horfurnar í áliðnaðinum á komandi vikum.