ÖBÍ vill að Eygló sjái sig um hönd

Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra.
Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra. mbl.is/Eggert

Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands vill að félagsmálaráðherra endurskoði ákvörðun sína um að víkja Guðmundi Steingrímssyni, þingmanni Bjartrar framtíðar, úr verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð. Guðmundur hefur veitt nefndinni formennsku frá stofnun hennar árið 2011. ÖBÍ lítur málið alvarlegum augum.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem framkvæmdastjórn ÖBÍ sendi á fjölmiðla. Hún er svohljóðandi:

„Öryrkjabandalagi Íslands (ÖBÍ) bárust þann 29. ágúst sl. þau tíðindi að Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra hefði vikið Guðmundi Steingrímssyni alþingismanni úr verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA), sem hann hefur veitt formennsku frá stofnun nefndarinnar árið 2011. Guðmundur var fyrsti framsögumaður þingsályktunar um NPA á Alþingi, sem samþykkt var af öllum flokkum.

Á sínum tíma þegar verið var að stofna til verkefnisstjórnarinnar varð nokkur ágreiningur um formann, sem allir gætu treyst. Guðmundur varð fyrir valinu, enda frumkvöðull að málinu á Alþingi. Guðmundur hefur unnið sitt verk af miklum heilindum og áunnið sér verðugt traust hagsmunasamtaka fatlaðs fólks. Það væri því mjög vanhugsað að skipta um formann, nú þegar aðeins er eitt ár eftir af tilraunatíma þessa mikilvæga mannréttindamáls.

Framkvæmdastjórn ÖBÍ lítur þetta mjög alvarlegum augum og skorar á ráðherra að endurskoða ákvörðun sína.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert