Eignast sitt eigið sirkustjald

Sirkus Íslands
Sirkus Íslands Eggert Jóhannesson

Nú er ljóst að Sirkus Íslands mun eignast sitt eigið sirkustjald eftir að tiltekin upphæð safnaðist á hópfjármögnunarvefnum Karolina Fund. Markmiðið var að safna 6,5 milljónum íslenskra króna.

Söfnuninni lýkur þó ekki fyrr en á miðnætti og fer allt það sem safnast umfram í kaup á stólum, ljósum og hljóðkerfi og flutningskostnað. Hér er hægt að fylgjast með gangi mála.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert