Framtíðarstefnu skortir í sjúkraflugi

Þyrla Landhelgisgæslunnar sinnir sjúkraflugi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sinnir sjúkraflugi. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Móta þarf framtíðarstefnu í sjúkraflutningum til að draga úr ríkjandi óvissu, að mati Ríkisendurskoðunar. Langvarandi vangaveltur hafa verið í stjórnsýslunni um breytingar á  rekstrarformi sjúkraflutninga, m.a. þá hugmynd að Landhelgisgæslan annist almennt sjúkraflug, en vegna misskilnings og óformlegrar meðferðar er málinu ólokið.

Ný skýrsla Ríkisendurskoðunar kom út í dag, þar sem fjallað er um skipulag og framkvæmd sjúkraflugs hér á landi, sem velferðarráðuneytið hefur umsjón með og býður út.

Viðræður við Landhelgisgæsluna dregist á langinn

Ríkisendurskoðun kemst m.a. að þeirri niðurstöðu að ráðuneytið þurfi að vanda betur til útboða á sjúkraflugi. Bent er á að tímafrestir á útboði sjúkraflugs árið 2012 hafi verið of knappir og samningstíminn óvenjulega skammur. Þar höfðu veruleg áhrif hugmyndir um að fela Landhelgisgæslunni að annast almennt sjúkraflug.

Fram kemur í skýrslunni að velferðarráðuneytið hafi átt í viðræðum við Landhelgisgæsluna um að hún taki yfir almennt sjúkraflug hérlendis. Þessar viðræður hafi dregist á langinn og ekki enn skilað niðurstöðu.

Að sögn Ríkisendurskoðunar hefur enn ekki verið metið með fullnægjandi hætti hvort sá möguleiki er hagkvæmur eða framkvæmanlegur. Mikilvægt sé að innanríkisráðuneytið kanni það með formlegum hætti.

Vanda þarf betur til útboða á sjúkraflugi

Vegna seinagangs í þessum viðræðum tafðist útboð sjúkraflutninga á síðasta ári. Nýr samningur átti að taka gildi 1. janúar 2013, en útboðið var ekki auglýst fyrr en í lok september 2012 og tilboð ekki opnuð fyrr en um miðjan desember.

Að mati Ríkisendurskoðunar var óraunhæft að ætla að nýr aðili gæti tekið við þjónustunni með svo skömmum fyrirvara. Þá var samningstíminn óvenju stuttur, sem Ríkisendurskoðun bendir á að geti takmarkað möguleika bjóðanda á að fá til baka þær fjárfestingar sem hann þarf að stofna til vegna þjónustunnar.

Í skýrslunni hvetur Ríkisendurskoðun ráðuneytið til að vanda til útboða og tryggja að útboðsferli og samningstími stuðli að jafnræði meðal mögulegra bjóðenda.

Myndi styrkja Gæsluna að annast sjúkraflutninga

Bent hefur verið á að með því að fela Landhelgisgæslunni að annast almennt sjúkraflug megi betur nýta tæki, aðstöðu og mannskap stofnunarinnar. Einnig myndi það styrkja fjárhagslegan grundvöll hennar.

Ríkisendurskoðun bendir hins vegar á að slík breyting hefði einnig í för með sér ýmsan kostnað, m.a. þyrfti að útvega Landhelgisgæslunni sérútbúna flugvél. Að mati Ríkisendurskoðunar liggja ekki fyrir nægar upplýsingar til að meta hvort hagkvæmt og framkvæmanlegt er að Landhelgisgæslan annist allt sjúkraflug.

Stofnunin hvetur innanríkisráðuneytið til að kanna þann möguleika með formlegum hætti. Samhliða er velferðarráðuneytið hvatt til að móta framtíðarstefnu um sjúkraflutninga hér á landi.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjúkraflug á Íslandi 2013

Mýflug fer hátt í 500 sjúkraflugferðir á ári.
Mýflug fer hátt í 500 sjúkraflugferðir á ári. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert