Veita 6 milljónir til flóttamanna

Flóttamenn í búðum UNHCR í Quru Gusik
Flóttamenn í búðum UNHCR í Quru Gusik AFP

Utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, hefur veitt 6 milljón króna framlag til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) vegna hins alvarlega flóttamannaástands í Sýrlandi og nágarannalöndum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

„Átökin í Sýrlandi hafa stigmagnast með hrikalegum afleiðingum fyrir óbreytta borgara. Tæpar tvær milljónir landsmanna hafa hrakist á brott og er talið að ríflega milljón börn séu þar á meðal. Viðtökulöndin eiga í erfiðleikum með að sinna þessum mikla fjölda flóttafólks og sífellt berast nýjar beiðnir frá alþjóðastofnunum sem þurfa sárlega á stuðningi að halda til að geta veitt Sýrlendingum neyðaraðstoð.“

 Framlög Íslands vegna neyðarástands í Sýrlandi á árunum 2012 og 2013 hafa verið sem hér segir:

     22 m.kr. (180.000 USD) til Barnahjálpar SÞ (UNICEF) til stuðnings

     sýrlenskum börnum á landamærum Sýrlands og Jórdaníu.

     6,5 m.kr (50.000 USD). til Flóttamannastofnunar SÞ (UNHCR) til

     aðstoðar þeim sem eru á vergangi innan Sýrlands.

     6,5 m.kr. (50.000 USD) til að styrkja Flóttamannastofnun SÞ fyrir

     Palestínuflóttamenn (UNRWA) í Líbanon sem veitir palestínskum

     flóttabörnum frá Sýrlandi nauðsynlega grunnþjónustu.

     10 m.kr. til Rauða kross Íslands vegna flóttamanna frá Sýrlandi sem

     hafast við í Jórdaníu, Írak og Líbanon.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert