Gæti valdið óbætanlegu tjóni

mbl.is/Eggert

„Ein meginstoðin í gangverki Landspítala, lyflækningasviðið, glímir nú við erfiðleika sem gætu hæglega valdið óbætanlegu tjóni ef ekki verður tafarlaust brugðist við með viðeigandi aðgerðum.“Þetta segir í grein sem 20 yfirlæknar og prófessorar á Landspítalanum birta í Fréttablaðinu í dag.

Þeir fjalla um það ófremdarástand sem ríkir á lyflækningasviði sjúkrahússins vegna langvarandi niðurskurðar og atgervisflótta almennra lækna og sérfræðinga.

„Staðan á lyflækningasviði er grafalvarleg og ástandið gæti haft keðjuverkandi áhrif á önnur svið sjúkrahússins sem einnig eiga undir högg að sækja,“ segir í greininni. Nú þegar sé fækkun lækna í einstökum sérgreinum orðin grafalvarleg.

Þá er fjallað um trúnaðarbrest milli almennra lækna og stjórnenda spítalans og hversu mikið laun lækna hafa dregist aftur úr öðrum stéttum. Húsnæði Landspítalans sé úr sér gengið, starfsaðstaða ófullnægjandi og tækjakostur bágur. Læknarnir segja að skjótra aðgerða sé þörf ef ekki eigi illa að fara.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert