Útiloka langtímasamning

Framsýn hefur unnið að mótun kröfugerðar vegna komandi kjaraviðræðna við …
Framsýn hefur unnið að mótun kröfugerðar vegna komandi kjaraviðræðna við atvinnurekendur. mbl.is/Eggert

Framsýn - stéttarfélag segir að það komi ekki til greina að gera kjarasamning til lengri tíma miðað við núverandi aðstæður, þar sem fjárlagafrumvarpið sé ekki komið fram og ný ríkisstjórn hafi ekki viljað gefa upp hvað hún hyggst gera í efnahagsmálum.

Þetta kemur fram í ályktun frá Framsýn. Fram kemur í tilkynningu að stéttarfélagið hafi síðustu mánuði unnið að mótun kröfugerðar vegna komandi kjaraviðræðna við atvinnurekendur. Félagið hafi haldið  félagsfundi um kjaramál og vinnustaðafundi þar sem kjaramál hafa verið til umræðu.

Þá hafi félagið einnig ályktað um kjaramál þar sem stefnu félagsins hefur verið komið á framfæri út í samfélagið. Gengið var frá endanlegri kröfugerð félagsins í gær.

Ályktunin er svohljóðandi:

„Algjör einhugur er innan félagsins að ekki komi til greina að gera kjarasamning til lengri tíma miðað við núverandi aðstæður þar sem fjárlagafrumvarpið er ekki komið fram og ný ríkistjórn hefur ekki viljað gefa upp hvað hún hyggst gera í efnahagsmálum. Í ljósi þessa telur félagið að fleyta eigi núverandi kjarasamningum áfram um 6 til 8 mánuði. Á móti komi launahækkun til félagsmanna þann 1. desember 2013, þegar núverandi kjarasamningar renna út. Hækkanirnar taki mið af verðbólgu- og launaþróun á árunum 2012-13.“ 

Framsýn er aðili að þremur landssamböndum, Starfsgreinasambandi Íslands, Sjómannasambandi Íslands og Landssambandi ísl, verslunarmanna. Framsýn hefur ákveðið að fela samböndunum samningsumboð félagsins í komandi viðræðum við atvinnurekendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert