Fyrsta ferð Herjólfs fellur niður í dag en ferjan átti að fara frá Vestmannaeyjum klukkan átta og tíu frá Landeyjahöfn.
Veðrið er byrjað að ganga niður og á að halda því áfram samkvæmt spá og vonast er til að hægt verði að sigla um eða eftir hádegi.
Farþegar Herjólfs geta fylgst með á vef ferjunnar.