Sýni djörfung við uppbyggingu safnsins

Morgunblaðið/Ómar

„Undirrituð samtök hvetja menntamálaráðherra eindregið til þess að sýna djörfung og þor við uppbyggingu Náttúruminjasafns Íslands í Perlunni“. Þetta kemur fram í bréfi sem níu samtök hafa skrifað undir og sent Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra.

Þar segir að Náttúruminjasafn Íslands sé lögum samkvæmt eitt þriggja höfuðsafna þjóðarinnar og eigi að gegna lykilhlutverki í kynningu og fræðslu um náttúru Íslands. Safnið hafi verið á hrakhólum og búið við óviðunandi aðstæður svo áratugum skiptir.

Í bréfinu segir að það sé mat Framkvæmdasýslu ríkisins að aðgangseyrir muni standa undir leiguverðinu, sem er 80 milljónir á ári fyrir 3.200 fermetra. Þá yrði safnið jafnframt mikilvægur þáttur í uppbyggingu ferðaþjónustunnar.

„Veglegt höfuðsafn í náttúrufræðum er stolt hverrar velstæðrar þjóðar og dýrmætur fróðleiksbrunnur fyrir þegna og gesti viðkomandi lands. Í ljósi þess að Íslendingar byggja atvinnu sína og líf á náttúru landsins í mjög ríkum mæli, auk þess sem langflestir erlendir ferðamenn sækja landið heim vegna náttúrunnar, skiptir öllu máli að bjóða upp á vandað höfuðsafn um náttúru landsins sem vel er í sveit sett og sómi er að,“ segir í tilkynningunni.

Samtökin níu eru Félag náttúrufræðikennara á grunnskólastigi, Félag raungreinakennara, Fuglavernd, Hið íslenska náttúrufræðifélag, Jarðfræðafélag Íslands, Landvernd, Líffræðifélag Íslands, Náttúruverndarsamtök Íslands og Samlíf -Samtök  líffræðikennara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert