Mildi þykir að ekki skuli hafa orðið slys á fólki þegar veghefli var bakkað upp á fólksbifreið skammt sunnan við bæinn Breiðabólstað við rætur Bröttubrekku nú í morgun.
Verið er að rífa upp klæðningu á stuttum vegarkafla á svæðinu og var hefillinn við þá vinnu þegar óhappið varð. Þetta kemur fram á Búðardalur.is.
Þar segir að svo virðist sem veghefilsstjórinn hafi ekki séð fólksbifreiðina sem var á vesturleið og bakkaði hann því upp á hana. Sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum hvar tennur aftan á vegheflinum gengu í gegnum framrúðuna bílstjóramegin.
Þá kemur fram að bifreiðin hafi verið óökufær eftir óhappið og var hún dregin burt með kranabifreið.