Rúmlega 69 þúsund undirskriftir

Aðstandendur átaksins Hjartað í Vatnsmýri munu í hádeginu afhenda Jóni Gnarr borgarstjóra áskorun rúmlega 69 þúsund manns til stjórnvalda um að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri.

Segja aðstandendur átaksins að aldrei hafi jafn margir skrifað undir áskorun til stjórnvalda.

Áskorunin hljóðar svo:

„Við leggjumst gegn þeim áformum að flugvallarstarfsemi víki úr Vatnsmýrinni og skorum á Reykjavíkurborg og Alþingi að tryggja öllum landsmönnum óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar.“

Lending.is

Hjartað í Vatnsmýrinni - undirskriftir
Hjartað í Vatnsmýrinni - undirskriftir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert