Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hitti Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, á boði sem bandarísku forsetahjónin héldu í New York á mánudagskvöld, en utanríkisráðherrann var viðstaddur fund Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna.
„Hitti Obama á mánudagskvöldið, hann spurði um heilsu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og hvernig fóturinn væri að jafna sig,“ skrifar Gunnar Bragi á Facebook.
Það vakti mikla athygli þegar Sigmundur Davíð fundaði með forsætisráðherrum Norðurlandanna og Obama á fundi í Stokkhólmi fyrir skemmstu. Vegna sýkingar í fæti varð Sigmundur að bregða á það ráð að klæðast Nike-íþróttaskóm á öðrum fæti.