Sprengjugengi Háskóla Íslands hlaut viðurkenningu Rannís 2013 fyrir vísindamiðlun. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra afhenti Sprengjugenginu viðurkenninguna við opnun Vísindavöku í dag.
Sprengjugengið samanstendur af hópi nemenda í efnafræði, efnaverkfræði og lífefnafræði við Háskóla Íslands sem hafa stundað kynningar og sýningar á undraheimi efnafræðinnar fyrir almenning síðan 2007.
Í fréttatilkynningu segir að kynningar og sýningar hópsins séu í senn fræðandi og skemmtilegar og til þess fallnar að örva áhuga ungmenna og almennings á efnafræði og skyldum raungreinum. Starfsemi hópsins hefur færst jafnt og þétt í aukana síðan 2007 og hefur frá upphafi verið í miklu og góðu samstarfi við skipuleggjendur Vísindavöku.
„Sprengjugengið er ekki bara skemmtilegt, heldur leggur það einnig mikla áherslu á að flétta inn skýringar á hinum ýmsu eðlisfræðilegum og efnafræðilegum eiginleikum sýningaratriða sem og að tengja fræðin við hversdagsleg fyrirbæri. Hópurinn hefur haldið sýningar víða um land í skólum, félagsmiðstöðum, komið fram í fjölmiðlum og ýmsum samkomum. Þá hefur hann lagt sig fram við að vinna með börnum á grunnskólastigi í Háskóla unga fólksins og víðar,“ segir í fréttatilkynningu.
Það er álit dómnefndar Rannís að Sprengjugengið, undir forystu Katrínar Lilju Sigurðardóttur, framhaldsnema í efnafræði, sé einstaklega vel að viðurkenningu fyrir vísindamiðlun komið.