Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur sent Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, formanni velferðarnefndar Alþingis, ósk um fund í nefndinni sem allra fyrst til að ræða alvarlega stöðu Landspítalans.
Vinstrihreyfingin-grænt framboð segir í tilkynningu, að flokkurinn hafi gríðarlegar áhyggjur af þeirri alvarlegu stöðu sem nú er uppi á Landspítalanum eftir uppsögn Björns Zoëga, forstjóra spítalans.