Ummæli um Egil ómerkt

Egill Einarsson
Egill Einarsson Morgunblaðið/Rósa Braga

Héraðsdóm­ur Aust­ur­lands hef­ur ómerkt um­mæli sem tví­tug kona lét falla á sam­skipta­vefn­um Face­book um fjöl­miðlamann­inn Egil Ein­ars­son. Auk þess var kon­an dæmd til að greiða 30 þúsund króna sekt í rík­is­sjóð og 100 þúsund krón­ur í bæt­ur til Eg­ils. Þá er henni gert að greiða 800 þúsund krón­ur í máls­kostnað.

Um­mæl­in voru sett fram á Face­book síðu sem stofnuð var í kjöl­far þess að viðtal við Egil birt­ist í Monitor, fylgi­riti Morg­un­blaðsins, í nóv­em­ber 2012. Um­mæl­in voru „mögu­lega stelp­un­ar [sic] sem gillz nauðgaði, biðjast af­sök­un­ar að dreifa blaði þar sem nauðgari þinn er að segja að þú sért að ljúga út um all­an skól­ann þinn“.

Í niður­stöðu dóms­ins seg­ir að um­mæl­in sem lát­in voru falla op­in­ber­lega hafi falið í sér af­drátt­ar­lausa full­yrðingu um að Eg­ill hefði gerst sek­ur um nauðgun. Þau hafi verið úr hófi fram og farið út fyr­ir mörk þess tján­ing­ar­frels­is sem kon­an nýt­ur. Þá hafi falið í sér ærumeiðandi aðdrótt­un í garð Eg­ils.

Þá var til þess litið að um­mæl­in voru al­var­legs eðlis og birt­ust op­in­ber­lega fyr­ir ótil­greind­um hópi fólks. Hvað varðar bæt­ur til Eg­ils leit dóm­ur­inn til þess að um­mæl­in hafi ekki bætt miklu við þann miska sem Eg­ill hafði orðið fyr­ir við op­in­bera um­fjöll­un um kæru­mál­in sem varð til­efni um­mæl­anna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert