UJ, félag ungra jafnaðarmanna, hélt landsþing sitt í Sandgerði um helgina undir yfirskriftinni „Auðjöfradekur eða ungt fólk.“
Á þinginu var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem segir að kosningaúrslit vorsins voru Ungum jafnaðarmönnum veruleg vonbrigðum, þar sem hafnað var ábyrgri stefnu Samfylkingarinnar og verulegur árangur þáverandi ríkisstjórnar, sérstaklega í efnahagsmálum fékk umfjöllun sem skyldi.
Þau telja með eindæmum að mögulegt sé að standa fyrir jafn mikilli afturför á jafn skömmum tíma og ný ríkisstjórn Íslands hefur staðið fyrir.
Ungir jafnaðarmenn hafna stjórnmálum óheiðarleikans og telja ábyrgð stjórnmálamanna sem leggja stund á þau vera slíka að þeim er ekki vært í valdastólum.
Ungir jafnaðarmenn telja það með eindæmum að mögulegt sé að standa fyrir jafn mikilli afturför á jafn skömmum tíma og ný ríkisstjórn Íslands hefur staðið fyrir. Er þar ekki einungis horft til aðgerða hennar í þágu hinna fáu, heldur einnig þess orðbragðs og þess vinnulags sem ríkisstjórnin hefur viðhaft á skömmum starfstíma. Einangrunarhyggja í alþjóðamálum í bland við ónýta efnahagsstefnu veldur því að Ungir jafnaðarmenn telja þörf á kröftugu andsvari þeirra sem styðja áframhaldandi stöðugar endurbætur, velferðarríki og fjölmenningarsamfélag í anda ríkisstjórnar jafnaðarmanna.
Kosningaúrslit vorsins voru Ungum jafnaðarmönnum veruleg vonbrigðum, þar sem hafnað var ábyrgri stefnu Samfylkingarinnar og verulegur árangur þáverandi ríkisstjórnar, sérstaklega í efnahagsmálum fékk umfjöllun sem skyldi. Þess í stað komust til valda stjórnmálaflokkar sem ekki verður annað séð en að hafi logið sig til valda með óraunhæfum og innistæðulausum loforðum í kosningabaráttunni. Hefur það enda komið á daginn að innihald, upphæðir og tímasetningar efnda hafa gerbreyst á þeim fáu mánuðum sem liðnar eru frá kosningabaráttunni. Ungir jafnaðarmenn hafna stjórnmálum óheiðarleikans og telja ábyrgð stjórnmálamanna sem leggja stund á þau vera slíka að þeim er ekki vært í valdastólum.
Vonbrigði Ungra jafnaðarmanna birtast einna helst í eftirfarandi málum. Annars vegar hinni óréttlátu og óútfærðu almennu skuldaniðurfellingu. Við teljum algerlega óboðlegt að hinu opinbera sé beitt til þess að hygla stóreignafólki á kostnað ungs fólks, sérstaklega þegar sú aðgerð felur í sér mörg hundruð milljarða króna útgjöld ríkisins á sama tíma og velferðarkerfið er alvarlega fjársvelt og ríkið situr í skuldasúpu Hins vegar í ráðaleysi ríkisstjórnarinnar í Evrópumálum þar sem engin ákvörðun hefur verið tekin önnur en ábyrgðarlausar yfirlýsingar utanríkisráðherra. Brýna Ungir jafnaðarmenn fyrir núverandi ríkisstjórn að kynna sér grunnreglur þingræðisins. Þá er ítrekuð krafa Ungra jafnaðarmanna um að fullkláraður samningur verði lagður í dóm íslensku þjóðarinnar.
Ungir jafnaðarmenn harma jafnframt hvernig fór fyrir nýrri stjórnarskrá í lok síðasta kjörtímabils. Ungir jafnaðarmenn standa ennþá við þá stefnu að Íslandi þurfi nýja stjórnarskrá byggða á tillögum stjórnlagaráðs. Við krefjumst þess að okkar fulltrúar haldi lífi í málinu og virði ekki kosningaloforð okkar um nýja stjórnarskrá að vettugi heldur fari eftir þeim vilja þjóðarinnar sem birtist skýrt í niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. október 2012.
Ungir jafnaðarmenn líta til framtíðar og ætla að taka þátt í uppbyggingarstarfi Samfylkingarinnar. Aldrei er meiri þörf á öflugri hugsjón en þegar á bjátar og því er nauðsynlegt að öflugur jafnaðarmannaflokkur og virk ungliðahreyfing sé til staðar. Vilji Ungra jafnaðarmanna stendur jafnframt til aukins samstarfs þeirra stjórnmálahreyfinga sem beita sér gegn sérhagsmunavaldi.