Viðar Guðjónsson -
Kristinn Kristmundsson, betur þekktur sem Kiddi-vídeófluga, er formlega hættur rekstri vídeóleigu sem hann hefur starfrækt á heimili sínu á Egilsstöðum í um þrjátíu ár. Hann segist hafa neyðst til að hætta rekstrinum vegna ólöglegs niðurhals og hvetur alla sem stunda slíkt til að láta af þeirri iðju.
Starfar við ræstingar
Síðastliðinn þrjú ár hefur hann starfað við ræstingar í söluskála N1. „Þetta er hin fínasta líkamsrækt sem maður fær borgað fyrir og ég hugsa að ég hafi yngst um 10-20 ár bara við það eitt að vera í skúringunum,“ segir Kiddi laufléttur að vanda. Samhliða skúringunum sinnir hann líkkistusmíði en hann saknar gamla starfsins mikið, enda skapaðist gjarnan góður vinskapur á milli hans og viðskiptavinanna.