Íslendingur í haldi í Argentínu

Kókaín
Kókaín AFP

Íslendingur á þrítugsaldri er í haldi lögreglunnar í argentínsku borginni Buenos Aires eftir að fjögur kíló af kókaíni fundust í fórum hans á flugvelli borgarinnar á fimmtudag.

Þetta kom fram í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins í kvöld. Maðurinn hefur þegar verið úrskurðaður í varðhald og er búist við að rannsókn málsins taki langan tíma. Maðurinn var á leið frá Argentínu þegar hann var handtekinn.

Utanríkisþjónustan hefur þegar haft samband við fjölskyldu mannsins hér á landi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert