Íslenska knattspyrnulandsliðið verður í sviðsljósinu í dag þegar það sækir Norðmenn heim og freistar þess að landa hið eftirsótta annað sæti í E-riðli. Mbl.is ræddi við sparkfræðinga og fékk þá til að spá í spilin fyrir leikinn en allir þrír viðmælendur mbl.is spáðu fyrir rétt um úrslitin á móti Kýpur eða 2-0 fyrir Íslandi.
Það voru þeir Víðir Sigurðsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is, ásamt jöxlunum Guðna Bergssyni og Grétari Sigfinni Sigurðarsyni. Guðni fór til Osló til að horfa á leikinn en Logi Ólafsson, knattspyrnuþjálfari, kemur í hans stað í dag.
Líkt og á móti Kýpur eru spekingarnir bjartsýnir fyrir Íslands hönd í dag.