Fjármála- og efnahagsráðherra stefnir að því að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um opinber fjármál í nóvember næstkomandi. Ef Alþingi samþykkir frumvarpið munu öll lög um fjárreiður ríkisins falla úr gildi en gildissvið nýrra laga yrði mun víðfeðmara. Meðal þess sem frumvarpið felur í sér er að ríkisstjórnir leggi fram fjármálastefnu til fimm ára í upphafi kjörtímabils sem háð er samþykki Alþingis. Stefnunni er ætlað að fela í sér markmið sem leiða eiga til stöðugleika og sjálfbærni opinberra fjármál.
Á grunni þeirrar stefnu skal fjármálaráðherra leggja fram fjármálaáætlun hvert vor. Sú áætlun felur í sér útlistun á því hvernig markmiðum fjármálastefnu verði náð. Fjárlagafrumvarpið skal síðan byggja á markmiðum fjármálaáætlunar. Í því sambandi er horft sérstaklega til útgjaldaþaks málefnasviða, sem fjármálaáætlun greinir ávallt frá að vori.
Við árslok 2011 var sett á laggirnar stýrinefnd sem falið var að gera heildarendurskoðun á fjárreiðulögunum og leggja grunn að nýrri heildarlöggjöf um fjárreiður ríkisins. Stýrinefndin samþykkti drög að nýju frumvarpi um opinber fjármál hinn 1. febrúar 2013. Þau hafa verið til kynningar á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins frá því í júní og var frestur til umsagna vegna frumvarpsins til 20. ágúst. Umsagnir bárust m.a. frá OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og forstöðumönnum ríkisstofnana.
Sjá tilkynningu ráðuneytisins