Hinn 1. febrúar voru 652 lögreglumenn starfandi á landinu, 570 karlar, 87,4% allra lögreglumanna, og 82 konur, sem gerir þær að 12,6% lögreglumanna. Konunum hefur lítið fjölgað síðustu ár þrátt fyrir að hafa verið 17-33% brautskráðra nemenda frá Lögregluskóla ríkisins frá 1999. Í Svíþjóð eru 28% lögreglumanna konur og 24,8% í Noregi. Brotthvarf kvenna úr lögreglunni á Íslandi er verulegt og staða kvenna innan lögregluliða landsins áhyggjuefni.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sem Finnborg Salome Steinþórsdóttir, MA-nemi í kynjafræðum við Háskóla Íslands, vann í samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra. Yfirskrift skýrslunnar er: „Vinnumenning og kynjatengsl lögreglunnar: Af hverju eru konur svo fámennar meðal lögreglumanna?“
Eitt af því sem er skoðað í skýrslunni er hvort viðhorf til kvenna geti útskýrt brotthvarf þeirra frá lögreglunni. Þar kemur í ljós að viðhorfið er heldur neikvætt, karlar treysta konum síður en körlum til að sinna öllum verkefnum og þeir virðast ekki viðurkenna konur sem jafningja sína. Aðeins tveir af hverjum þremur körlum treysta konum til að starfa við hlið karla í ávana- og fíkniefnadeild LRH og þá er sérsveitin talin vígi karla.
Sláandi er að viðhorf yngstu lögreglumannana, á aldrinum 20-29 ára, eru íhaldssömust, sem gefur til kynna að jafnrétti innan lögreglunnar muni ekki aukast sjálfkrafa með komandi kynslóðum. Tæplega 50% lögreglumanna á aldrinum 20-29 ára voru mjög sammála þeirri fullyrðingu að karlar væru hæfari en konur til að starfa í sérsveit ríkislögreglustjóra.
Katrín Salima Dögg Ólafsdóttir, jafnréttisfulltrúi lögreglunnar, segir að þessi íhaldssömu viðhorf ungra karlmanna hafi komið sér á óvart. „Aðrar jafnréttisrannsóknir hafa sýnt þetta líka, sem er vísbending um að þetta sé samfélagslegt vandamál frekar en bundið við lögregluna. Það er sláandi að þessi rannsókn skuli styðja þessa afturför í jafnréttismálum.“
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, tekur í svipaðan streng. „Þetta vantraust gagnvart konum kemur mér á óvart. Maður hefði haldið að aukin fræðsla á öllum þessum sviðum hefði átt að skila sér betur til þeirra yngri en eldri,“ segir Snorri.
Arnar Guðmundson, skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, segist ekki hafa haft tilfinningu fyrir því að karlkyns lögreglumenn beri ekki virðingu fyrir kvenkyns samstarfsfélögum sínum. Hann hefur annars ekki einhlíta skýringu á því hvers vegna konur sem útskrifast úr skólanum skila sér ekki betur inn í lögregluna. Það hafi verið markmiðið síðan 1997, þegar ný lögreglulög voru sett, að fjölga konum í lögreglunni og það hafi verið að gerast jafnt og þétt síðan þá. 20-30% þeirra sem komast inn í lögregluskólann ár hvert eru kvenkyns; stærra hlutfall sækir um en kemst ekki í gegnum inntökuprófið. Inntökupróf karla og kvenna er eins fyrir utan tímamörk í hlaupum og sundi. „Það er klárt mál að það hefur verið tekið tillit til þess í inntökunni að fá konur inn. Þær standa sig ekki verr en karlar í að fara í gegnum lögreglunámið, sjónarmið kvenna fá alveg að njóta sín í þessu og full þörf á því,“ segir Arnar.
Enginn kvenkyns kennari er í föstu starfi hjá Lögregluskóla ríkisins í dag. „Fimm lögreglumenntaðir kennarar sinna meginhlutanum af kennslu í almennu lögreglunámi, ýmsir aðrir koma að stundakennslu, bæði karlar og konur. Fram yfir síðasta vor var kona búin að vera hér í nokkur ár í föstu starfi en það er engin akkúrat núna,“ segir Arnar.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segir það hafa verið gott framtak hjá Ríkislögreglustjóra að gera þessa rannsókn. „Niðurstöðurnar sýna að það var þörf á því og það er brýnt að fara strax í aðgerðir sem bæta stöðu og starfsumhverfi kvenna innan lögreglunnar,“ segir Hanna Birna og bætir við að hún muni styðja lögregluna í þeim aðgerðum. Hanna Birna segir að Ríkislögreglustjóri hafi þegar boðað það að vinna verði hafin innan embættis hans sem miði að frekari samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða við stefnumótun og ákvarðanatöku lögreglunnar. Þá hafi hann einnig hvatt konur til þess að sækja um yfirmannsstöður innan lögreglunnar. „Ég tel að þær aðgerðir sem að embætti hans og lögreglan almennt eru að boða séu til marks um að þeim er mikil alvara með að taka á þessari stöðu,“ segir Hanna Birna.
Það á að taka á málum er varða einelti og kynferðislega áreitni. Í skýrslunni kemur fram að 18% lögreglumanna töldu sig þolendur eineltis í lögreglunni, eða 24% kvenna og 17% karla. Tæplega 31% kvenna og 4% karla töldu sig þolendur kynferðislegrar áreitni í lögreglunni. Þrátt fyrir þessar tölur kom árið 2012 aðeins ein tilkynning um einelti til jafnréttisfulltrúa lögreglunnar og engin um kynferðislega áreitni, samkvæmt tölfræðiupplýsingum sem lögregluembættin safna saman.
Katrín segir að það sé von þeirra að með fyrirhuguðum aðgerðum komi þessi mál upp á yfirborðið svo hægt sé að leysa vandann en samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar virðist vera sem einstaklingarnir séu að leysa þetta sjálfir.