50 kíló af lambakjöti hjá Samhjálp

Matreiðslumenn elda fyrir skjólstæðinga Samhjálpar
Matreiðslumenn elda fyrir skjólstæðinga Samhjálpar Árni Sæberg

„Það spurðist greinilega út að við myndum vera þarna, þannig að það mættu enn fleiri en gengur og gerist,“ segir Árni Þór Arnórsson, verkefnastjóri Alþjóðadags matreiðslumeistara, en alls 7 matreiðslumeistarar elduðu ofan í skjólstæðinga Samhjálpar í dag í tilefni af alþjóðadegi matreiðslumanna. Alls telur Árni að um 200 manns hafi mætt í dag. 

Boðið var upp á morgunmat í húsnæði Samhjálpar frá klukkan 11. „Við byrjuðum svo að framreiða lambasteikina klukkan tvö. Lambalærið var með hefðbundnu sniði svona eins og sunnudagssteikin, með rauðkáli, grænum baunum og sykurhúðuðum kartöflum eins og öllum finnst gott,“ segir Árni. Af þeim 7 sem elduðu matinn eru þrír meðlimir kokkalandsliðsins, þar á meðal matreiðslumaður ársins. 

Sjá einnig: Elda lambalæri með öllu hjá Samhjálp

Matreiðslumeistarar elduðu fyrir skjólstæðinga Samhjálpar í dag
Matreiðslumeistarar elduðu fyrir skjólstæðinga Samhjálpar í dag Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert