Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 26,5% í nýjustu könnun MMR sem gerð var 10.-15. október. Fylgi Samfylkingarinnar jókst nokkuð og mældist nú 17,3%, borið saman við 14,6% í síðustu mælingu. Fylgi Framsóknarflokksins mældist 15,4%. Vinstri græn mældust nú með 12,6% fylgi og Björt framtíð mældist með 12,2% fylgi. Pírataflokkurinn mældist með 7,7% fylgi.
Dögun mældist með 2,4% fylgi, Flokkur heimilanna með 1,3% fylgi, Hægri grænir með 1,2% fylgi, Lýðræðisvaktin með 1,1% fylgi, Regnbogaflokkurinn með 1,0% fylgi, Alþýðufylkingin með 0,4% fylgi og Sturla Jónsson með 0,3% fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 44% en mældist 47,4% í síðustu könnun.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,4%), myndu skila auðu (6,3%), myndu ekki kjósa (1,7%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,8%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 937 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 10. til 15. október 2013